wFannáll öngþveitisins
Ég heiti Elmar Geir Unnsteinsson og er stúdent frá MA sem stundar nú nám við HÍ.
Ég bið fyrirfram forláts, ef mér er illa við að skrifa það, sem þér þykir gaman að lesa.
Tölvupóstur: elmar.geir@gmail.com

wles autres

4ði F, 2004

Anna Egils

Ari

Arna

Arnar

Auðunn

Auður Stefáns

Atli

Bergþóra

Binni

Einar Örn

Elvar Berg

Erla

Geir

Gunnar

Hallur

Haukur

Heiða Pálrún

Heimir

Heimir Freyr

Helena Árna

Helgi Vilberg

Hildigunnur

Hjalti

Hrafn

Hrönn

Hulda

Ingibjörg

Inga Dagný

Jóhannes Árna

Jónas Þór

Katrín

Kristjana

Lárus Heiðar

Lilja

Lilý

María

Ríkey

Samkynhneigði homminn

Sigurður Gísli

Sigþrúður Margrét

Sindri

Steinunn Erla

Særún Ósk

Trausti

Þorgeir

Ævar Þór

Senda mér póst

Senda mér smess

Spjalla við mig á MSN




wamor fati


október 2002

nóvember 2002

desember 2002

janúar 2003

febrúar 2003

mars 2003

apríl 2003

maí 2003

júní 2003

júlí 2003

ágúst 2003

september 2003

október 2003

nóvember 2003

desember 2003

janúar 2004

febrúar 2004

mars 2004

apríl 2004

maí 2004

júní 2004

júlí 2004

ágúst 2004

september 2004

október 2004

nóvember 2004

desember 2004

janúar 2005

febrúar 2005

mars 2005

apríl 2005

maí 2005

júní 2005

ágúst 2005

september 2005

október 2005

nóvember 2005

desember 2005

janúar 2006

febrúar 2006

mars 2006

apríl 2006

maí 2006

júní 2006

júlí 2006

ágúst 2006

september 2006

október 2006

nóvember 2006

desember 2006

júlí 2007





This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

Vefhringur
< ? iCeBloG # >

 

wmánudagur, júlí 23, 2007


Vil vekja athygli á nýrri síðu minni á www.elmargeir.net. Þar mun ég skrifa um heimspekileg hugðarefni mín næstu misserin.


posted by Elmar at 11:55 AM #$@ | Athugasemdir - |


wlaugardagur, júlí 07, 2007


Merkilegt, nú hef ég skrifað hugleiðingar mínar hér á Fannál öngþveitisins í að verða fimm ár. Og nú var hann m.a.s. auglýstur í Blaðinu í dag, en hér hef ég ekkert skrifað í rúmlega hálft ár! Við Bergþóra vorum jú í heimsreisu og þá héldum við ferðadagbók á www.elmargeir.net.

Nú hef ég verið að skrifa ýmislegt á elmargeir.blog.is undanfarið, sem er ástæðan fyrir allri þessari umfjöllun í blöðunum. Ekki veit ég hvort ég á alla þessa athygli skilda.

En mér þykir leiðinlegt að hafa allt þetta kraðak af vefsíðum á mínum vegum! Hvurslags eiginlega hroki er það að eiga einhverjar fjórar netsíður! (Ef með er talinn Samkynhneigði homminn, sem, er mér sagt, enn vekur upp kátínu hjá ótrúlegasta fólki.)

Ég ætla að ráða á þessu bót og mun líklega einungis nota lénið www.elmargeir.net er fram líða stundir. Þar hef ég hugsað mér að skrifa lengri pistla, oftast um heimspeki, og birta þar frjálslega gagnrýni á ýmsar bækur sem ég les. (Ég er orðinn leiður á því leggja góða bækur einfaldlega frá mér að lestri loknum, þess vegna vil ég gera þetta.)

Þar til mér verður unnt að koma þeirri síðu á fót mun ég þó halda áfram að skrifa bæði hér og á elmargeir.blog.is, þegar ritbrjálæðið leggst á mig. En það virðist óstöðvandi um þessar mundir.

Til hamingju með daginn!


posted by Elmar at 11:43 AM #$@ | Athugasemdir - |


wsunnudagur, desember 31, 2006


Góðan dag!

Ég og Bergþóra erum á leið í heimsins mestu heimsreisu í heimi. Við förum eftir nokkra daga. Af því tilefni hef ég ýtt nýrri vefsíðu úr vör og má sjá hana hér: elmargeir.net. Þar verða myndir og sögur úr ferðalaginu. Endilega fylgist með hrakförum okkar!

Til hamingju með árið!


posted by Elmar at 4:33 PM #$@ | Athugasemdir - |


wþriðjudagur, desember 19, 2006


Ég einfaldlega verð að leyfa fólki að lesa stórskemmtilega hugsunarvillu Kára Jónassonar í leiðara Fréttablaðsins í dag:

Þeir sem best fylgdust með og þekktu til áttu auðvitað að vita, að það var aðeins spurning um tíma, en ekki hvort eða hvenær stjórnvöld í Bandaríkjunum ákvæðu að flytja starfsemi sína héðan.

Sá sem kemur auga á villuna fær klapp á öxlina.


posted by Elmar at 4:08 PM #$@ | Athugasemdir - |


wlaugardagur, desember 09, 2006


Nú fjalla margir um hina svokölluðu „Vinaleið“ í ræðu og riti. Ekki vil ég vera minni maður.

Ég er guðleysingi og er andsnúinn því sem er réttnefnt trúboð. En ég er ekki á móti öllu því sem kallað hefur verið trúboð á vorum dögum.

Á hinn bóginn er ég algjörlega mótfallinn þeirri villutrú að börnum sé skaðlegt að fá rækilega innrætingu - sem er talið til niðrandi orða og hnjóðsyrða.

Og hvað get ég ráðið af þessu? Jú, ég er bæði ósammála formælendum Vinaleiðarinnar og hatrömmustu andstæðingum hennar. Ég held að flestum sé ljóst hvers vegna ég hef horn í síðu Vinaleiðarinnar, enda er það alls ekki svo flókið mál. En hitt er annað mál: margir andmæla Vinaleið (og ýmsu sambærilegu) á forsendum sem ég mun ekki leggja blessun mína yfir.

Í þessum forsendum er nefnilega dulin mótsögn - eða a.m.k. togstreita - sem fáir bera kennsl á. Þeir sem andmæla Vinaleið (t.d. Reynir Harðarson) andmæla henni vegna þess að börn eiga ekki að verða fyrir innrætingu (í þessu tilfelli 'trúaráróðri') vegna þess að þau eiga að taka sjálfstæðar ákvarðanir (eða a.m.k. að reyna að læra það). Börn eiga að standa á eigin fótum. Rækta með sér sjálfstæða og gagnrýna hugsun.

Auðvitað eiga þau að gera það! En hvernig eiga þau að læra gagnrýna og sjálfstæða hugsun ef þau hafa ekkert til að gagnrýna? og ég á við alvöru gagnrýni - að gagnrýna skólaprestinn fyrir trúboð er frábært dæmi. (En ég er á móti skólaprestum. Ég er ekki á móti því að prestar séu kennarar.)

Ég tel það fyrir löngu sannað mál að 'uppgötvunarnám' - þar sem börnum er ekki kennt heldur reyni kennarar að fá þau sjálf til að 'uppgötva' það sem þau eiga að læra - voru hippalegar ofskynjanir.

Börn þurfa að kynnast fólki, ólíku fólki. Prestum, lögfræðingum, kennurum - fólki með ólík viðhorf. Það sem er erfitt er að þetta fólk þarf að kunna að slá varnagla og segja börnum að það séu fleiri fiskar í sjónum.


posted by Elmar at 2:32 PM #$@ | Athugasemdir - |


wþriðjudagur, nóvember 28, 2006


Það er alltaf mjög gaman þegar aðsókn á fannálinn eykst svona snarlega. Engu að síður nenni ég ekki að halda þessari MorfÍs-umræðu áfram. Samt þykja mér margir hafa sagt mjög heimskulega hluti og borið saman ýmislegt sem er með engu sambærilegt.

En þetta er það sem maður græðir á því að sökkva sér of djúpt ofan í MorfÍs. Lætur kannski einsog allt sé MorfÍs og heldur að leiðin til að hafa betur sé alltaf sú að segja eitthvað skítlegt um andstæðinginn (eða bara hvern sem vera skal).

Það er ekki langt síðan ég gerði mér grein fyrir því að þessi ræðukeppni gerði mér ógagn fremur en gagn þegar út í raunveruleikann er komið. Það sem virkar í MorfÍs virkar ekki í raun og veru. Þetta er ástæðan fyrir því að JC-menn gátu ekki lengur haldið utan um keppnina og gáfu hana frá sér fyrir löngu síðan.

(Ef ég kalla einhvern hálfvita og er ávíttur fyrir það, þá biðst ég afsökunar. Ég gref ekki upp gamlan skít og segi að hann hafi nú sjálfur kallað einhvern hálfvita. Það skilar okkur engu. Nú hefur ákveðnum mönnum tekizt að fá mig og félaga minn til að iðrast kjánalegra ummæla og athæfa. En þeir sitja við sinn keip og sjá ekki eftir neinu.

En í guðanna bænum, ekki svara þessu með einhverjum framhaldsskólaríg. Þetta er minn fannáll, ég bara eyði slíku rugli af spjallkerfinu.)

Já, mig langaði að skrifa um eitthvað annað og skemmtilegra. Man ekki hvað það var. Þannig að ég sleppi því bara.

Til hamingju með daginn!


posted by Elmar at 9:35 PM #$@ | Athugasemdir - |


wsunnudagur, nóvember 26, 2006


Síðastliðinn föstudagsmorgun, 24ða nóvember, vaknaði ég klukkan 9:00 eftir hérumbil fimm tíma svefn. Síðan þá hef ég vakað í 48 klukkutíma. Reyndar dottaði ég í svona rúman hálftíma einhvers staðar á miðri leið. Að þessu hníga ýmsar ástæður. Til dæmis ein næturvakt frá klukkan 19:00 25ta til 10:00 26ta – en ég var að koma af henni. Reyndar náði ég að sofa aðeins á vaktinni.

En helzta ástæðan er Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla Íslands. Á föstudagskvöldið kepptu MA og VÍ. Ég flaug Norður og varði vikukröftum í að hjálpa hinu frábæra ræðuliði MA. Umræðuefnið var ‘Satan’ – þeirra uppástunga, ekki okkar. Umræðuefnið gefur til kynna hversu ótrúlega skítleg þessi keppni er orðin.

Við töpuðum keppninni, Satan vann. Verzlingar voru með Satan.

Nú hef ég áður tapað ræðukeppni, m.a.s. gegn Verzló, og ég hef áður verið fáránlega bitur og tapsár af þeim sökum.

En þetta er allt annar handleggur. Þegar Verzlingar fögnuðu sigri missti ég trúna á æsku landsins. Ég hef misst þessa trú áður, en hún laumast sífellt aftan að mér. Stríður er bogi bjartsýninnar. Ég vil nefna nokkur atriði um keppnina:

1. Hafsteinn, eða Sleggjan (einsog ég heyrði einhvern kalla þennan unga herramann), tók um öxl fundarstjórans og sagðist ætla ríða henni. Fundarstjóri keppninnar er alsaklaus stelpa úr MA sem stóð sig með stakri prýði – sumir hefðu orðið snarvitlausir yfir svona nokkru. Ekki nóg með það; Hafsteinn sagðist ætla ríða henni vegna þess að hann vildi það og hann gæti það. Hann sagðist mundu taka hana með sér til Reykjavíkur, þar sem hann ætlaði að fá vilja sínum framgengt.

2. Davíð Gill, sem fékk flest stig og fékk titillinn „ræðumaður kvöldsins“, kallaði þessa sömu fundarstýru ‘fundarhóru’ þegar hann steig í pontu. Ræðumaður kvöldsins kallaði fundarstýruna hóru. Þetta bara hlýtur að vera einhvers konar mótsögn.

(Mér finnst sorglegt að engin refsistig hafi verið gefin fyrir 1-2. Ég man eftir keppni þar sem dómari sagðist ekki hafa getað gefið tilteknum ræðumanni háa einkunn fyrir ræðu vegna þess að hann sagði fundarstjórann vera feitan. Þessi dómari hefði líklega gefið tveimur ræðumönnum Verzlinga 0 í einkunn. Það hefði kannski verið réttast.)

3. Tveir liðsmenn Verzlinga fengu að vita úrslit keppninnar áður en oddadómari tilkynnti þau. Vísast hafði Halldór (sem kallar sig Dóra DNA, hvað sem það á nú að fyrirstilla), einn þeirra sem dæmdu keppnina, samband við strákana símleiðis eða hitti þá áður en oddadómari steig í pontu. [Eftir að hafa rætt málið við Halldór tek ég þessi ummæli strax til baka, og bið hann afsökunar, enda voru þau ekkert annað en ágizkun. Hvers vegna drengirnir vissu úrslitin er því óráðin gáta.]

Halldór þessi dæmdi Verzlingum 140 stiga sigur, ef mig misminnir ekki. (Ég þakka Verzlingi fyrir ábendinguna - mig misminnti. Ég er með frumritin að dómblöðunum, Halldór dæmdi 87 stiga sigur.)

4. Stuðningslið Verzló mætti ofurölvi á svæðið og dreifði bjórdósum víða um skólalóðina. Þetta uppgötvaðist alltof seint, sem er synd og skömm. Einn klappliðsmaður þeirra sat mér á vinstri hönd og hafði sig mjög í frammi. Ég sagði honum að ölvun væri brottrekstrarsök, það lækkaði í honum rostann. Eftir keppnina tjáði þessi drengur mér kæruleysislega að hann hefði fengið sér neðan í því og hélt að mér þætti það bara hið bezta mál. Það fannst mér ekki, en lítið var hægt að aðhafast að svo komnu máli.

5. Ung stúlka var gæzlumaður ræðuliðs Verzlinga fyrir okkar hönd. Í hléi virtu þeir tilsögn hennar að vettugi, kölluðu hana illum nöfnum sem óþarfi er að tíunda hér og skelltu hurð í andlitið á henni. Auðvitað varð hún miður sín. Strákarnir sáu þó sóma sinn í að biðja hana fyrirgefningar og kenndu streitunni um.

(6. Mælskumaður veit að ‘Satan’ fær ekki –i endingu í þágufalli. Ergo, enginn ræðumaður Verzló er mælskumaður. Þetta er aðallega kaldhæðni og er því innan sviga.)

Síðast vil ég fara nokkrum orðum um málflutning ræðuliðanna. Vitanlega er ég ekki hlutlaus, en ég gæti leitt rök að hverju orði sem hér stendur.

Ræður Verzlinga voru ómerkilegt húmbúkk. Ræðumaður kvöldsins hóf báðar sínar ræður á vísunni ‘alúetta láttu kúkinn detta … etc.’ og í síðara skiptið átti meintur kúkur að vera í rassi eins liðsmanns MA. Góð hugmynd? Já, þegar átta ára krakki fær hana.

Eru þetta engin rök? Jú, þetta eru gild rök.

Ræðumaður kvöldsins endaði fyrri ræðu sína á því að telja upp hluti. Rækjur, plómur, selir, gluggatjöld og fleira í þessum dúr. Endapunkturinn hans. Það sem maður átti að muna eftir. Þar sem æskilegt er að hnykkja á rökunum í ræðunni (ef þau eru fyrir hendi) og kannski að koma þeim fyrir í fáum eftirminnilegum setningum. Nei, punkturinn var sá að MA-ingar myndu svipta fólk þessum nauðsynlegu hlutum (nauðsynlegir vegna þess að fjölbreytni er nauðsynleg) vegna þess að þeir væru á móti Satan.

Það þarf ekki mikla hugsun til að semja svona rugl. (Það tekur mig, og aðra sem leggja hönd á plóginn, að meðaltali tvær sekúndur að upphugsa nýja færslu á samkynheigða hommann - sem er auðvitað bara meinlaus grínsíða.) En þetta krefst mikils af átta ára krakka sem vill verða vinsælastur í bekknum. Aftur vilja ugglaust margir meina að þessi líking við átta ára krakka sé ódýr kveðskapur. Þá þarf að gera þeim ljóst að rétt rök eru býsna oft augljós rök – eitthvað sem enginn myndi kalla ‘rök’ vegna þess að það liggur svo beint við.

MorfÍs er mikilvægur hluti af starfi framhaldsskólanna. Yngri nemendur sækja fyrirmyndir sínar í ræðumenn, (því þeir eru áberandi), alveg einsog í Gettu betur lið, þá sem keppa í stærðfræðikeppnum o.s.frv. Þess vegna ættu þeir að vera til fyrirmyndar. Ræðumaður bendir á stelpu og kallar hana hóru. Allir hlæja. Er þetta gott? Nei. Fer allt til fjandans ef fólki finnst þetta bara fínasta mál? Ég fæ ekki betur séð en sú sé raunin.

Ég skil alltaf betur og betur hvers vegna kennurum er almennt mjög í nöp við þessa keppni. Skólarnir, nemendafélögin og hið háa menntamálaráðuneyti ættu ekki að láta þetta viðgangast. Fólk ætti ekki að láta þetta viðgangast. Það þarf að breyta þessari keppni eða eyða henni með öllu (hér verða allar gömlu kempurnar fullkomlega ósammála mér – en þær sjá bara ekki alvarleika málsins – Ævar virðist samt vera á sama máli). Gettu betur er haldið í skefjum með aðkomu ríkissjónvarpssins. Kannski er það eina leiðin til að óprúttnir dónar fái ekki að blómstra í þessari keppni. Kannski ekki.

Að öllu þessu sögðu vil ég bara þakka MA-ingum kærlega fyrir stórskemmtilega undirbúningsviku. Mér fannst ræðuliðið okkar vera okkur norðanstúdentum til mikils sóma. Mér fannst öll framkoma Verzlinga skóla þeirra til háborinnar skammar. Því vona ég að við séum bara menn að meiri – en slíkt skal ég ekki fullyrða um.

Ræðumennska er samsett orð. Ég held að margir gleymi því að það er ekki nóg að hafa ræðuna – maður þarf líka að vera mennskur.



posted by Elmar at 6:12 PM #$@ | Athugasemdir - |


wfimmtudagur, nóvember 02, 2006


Davíð Þór Jónsson skrifaði bakþanka á baksíðu Fréttablaðsins fyrir stuttu. Þenkingarnar höfðu titilinn „Legókubbar sálarinnar“. Hugsun Davíðs var einkar skemmtileg og snjöll. En ég man ekki smáatriðin.

Titillinn fangaði athygli mína. Hann er lýsandi dæmi þess sem ég velti vöngum yfir í heimspeki. Sjáið til: það að sálin sé sett saman úr kubbum (eða hverju öðru sem vera skal), er strangt til tekið merkingarlaust. Sál er ekki hlutur; við getum ekki borðað sálir eða fleytt kerlingar með þeim, við getum ekki kveikt í sál eða skorið hana í fernt.

Og þess vegna (samkvæmt þessum hugleiðingum) nær engri átt að tala um legókubba sálarinnar.

Eða hvað? Geta legókubbar sálarinnar ekki verið „byggingareiningar lífsins“ (t.a.m. þroski, rökhugsun, heilsa o.s.frv.)? Vissulega!

Að borða sál má vera að tileinka sér atgervi annars manns - t.d. gætum við sagt að Ingvar E. Sigurðsson hafi „borðað sál“ Erlends úr bókum Arnalds Indriðasonar. Að fleyta kerlingar með sál sinni gæti verið að láta hugann reika. Að kveikja í sál að vekja yfirdrifna hrifningu einhvers.

Jájá, gæti einhver sagt, en þetta er allt yfirfærð merking. Það er skýr munur á bókstaflegri og yfirfærðri merkingu. -Það tel ég reyndar vera fjarska umdeilanlegt, en sleppum því.

Þrátt fyrir þetta tel ég mikinn akkur í því að leyfa sér að segja eitthvað vera fullkomlega merkingarlaust. Fullkomlega merkingarlaust að tilteknu samhengi gefnu og ákveðnum markmiðum. Gott dæmi væri að halda því fram að guðsönnun Anselms sé varla merkingarbær.

En nú þarf ég að vinna.


posted by Elmar at 9:42 PM #$@ | Athugasemdir - |


wmánudagur, október 16, 2006


Íslömsk kona var rekin úr grunnskóla í Bretlandi fyrir að ganga með slæðu sem hylur allan líkama hennar nema augu og hendur. Jack Straw segir að slæðan sé augljóst tákn aðskilnaðar og mismunar.

Mér finnst þessi umræða alltaf mjög áhugaverð. -Hvað með kristnar nunnur? Eigum við að reka þær?

En já, ég fann nefnilega mjög skemmtilega (og stutta!) grein um málið, endilega lesið þetta.


posted by Elmar at 12:52 PM #$@ | Athugasemdir - |


wfimmtudagur, september 28, 2006


Er einhver til í að gera eitthvað róttækt og fara með mér hingað?

Vissumaðþettaverðursnilld.


posted by Elmar at 12:48 PM #$@ | Athugasemdir - |


wfimmtudagur, september 21, 2006


Halló krakkar! Ég heiti Tommi tómatur!

Minn kæri vinur og félagi, Hlegi Bilverg Helgason, sem sumir kalla Helga Vilberg Helgason, hefur tekið upp hljómplötu!

Platan heitir Gerum eitthvað róttækt, förum að sofa.

Þetta er ein bezta plata í heimi og á heimasíðu Helga er hægt að panta eintak.

Hafir þú einhverja vitglóru í höfðinu, muntu smella hér og næla þér í þennan frábæra grip.


posted by Elmar at 12:10 PM #$@ | Athugasemdir - |


wlaugardagur, september 16, 2006


mbl.is: Múslímar hvattir til að drepa páfa

Það er á svona stundum sem ég styrkist í trúleysinu og hugsa sem svo: ég tek ekki þátt í þessu.

Vil ekki af trúarbrögðum vita.

Ég flokka trúarbrögð ekki í 'góð' og 'slæm'. Margir þeir sem aðhyllast trúarbrögð renna, með því, stoðum undir þá hugmynd að trúarlegar athafnir og skoðanir séu hafnar yfir skynsamlega gagnrýni.

Páfi segir (og er að vitna í annan mann frá fjórtándu öld): Múhameð færði heiminum ómennska hluti.

Sjeik Abubukar Hassan Malin segir: Drepið páfa.

Hvað á maður að eiginlega að halda?


posted by Elmar at 2:10 PM #$@ | Athugasemdir - |


wföstudagur, september 08, 2006


Þér er ekki fisjað saman!

Hvað ertu að vilja hér?

Ég vilja.


posted by Elmar at 7:32 PM #$@ | Athugasemdir - |


wmánudagur, ágúst 28, 2006


Kannski kominn tími á heimspekilegt stundargaman.

Tvær tilhneigingar eru áhugaverðar. Önnur er sú að okkur finnst eðlilegt að segja sem svo að hegðun manns sé eina vísbendingin sem við höfum um það hvort hann sér eða ekki. Það er hversdagslegt og óumdeilt að telja svo vera. Hvernig vitum við hvort annar maður sér eða er blindur? Jú, ef hann er blindur þá hegðar hann sér svona, ef hann sér þá hegðar hann sér hinsegin.

Ofureinfalt.

En svo er önnur álíka sjálfsögð hugmynd. Við lítum svo á að það hvort maður sér í raun og veru sé óháð því hvernig hann hegðar sér. Fólk heldur nefnilega flest að eitthvert vit sé í að ímynda sér blindan mann sem hegðaði sér alveg eins og hann hefði sjón. Það sem ég á við er að fólk greinir engan ómöguleika í þessu dæmi. Það er sama hvernig maðurinn hreyfir sig, talar og hagar sér yfirleitt - það gæti alltaf komið í ljós að hann væri blindur.

(Ég held vitanlega ekki að allir haldi þessu sýknt og heilagt fram - þetta eru hugmyndir sem mörgum hugkvæmist auðveldlega í heimspekilegum samræðum. -En auðvitað er ég bara að lækka forræðistóninn með svona asnalegu svigamáli).

Það sem er skemmtilegt er að hér eru tvær eðlilegar hugmyndir sem margir myndu glaðlega skrifa undir í einu og sama vetfanginu. Því væri betur sleppt. Þessar tilgátur eru í mótsögn hvor við aðra. En mótsögnin er flókin.

Villurnar er ávallt að finna í óvanalegri orðanotkun. Í fyrri tilgátunni er orðið 'vísbending' höfuðatriði. En það er ekki notað á hefðbundinn máta. Ég gæti sagt: „Augað verður gult þegar lifrin er í ólagi,“ og þá er gult auga vísbending. Ég hef tengt saman tvö fyrirbæri reynslunnar. Gult auga er vísbending um lélega lifur. Tökum eftir því að í þessu tilfelli er vísbendingin óháð merkingu setningarinnar „lifrin er í ólagi“. En það að Jói hagi sér einsog hann hafi sjón er ekki óháð merkingu setningarinnar „Jói sér“.

Kjarni málsins er að ef þessi fyrirbæri (sjón og hegðun) eru óháð hvort öðru, einsog segir í seinni tilgátunni, og engin möguleg reynsla tengir þau saman (andrætt dæminu um gula augað), hvernig gætum við þá í ósköpunum sagt að eitt þeirra sé vísbending um annað?

Og hvað má leiða af því? Kannski ýmislegt. En ég held að þetta sýni að minnsta kosti að setningin „Jói gæti verið blindur en hagað sér samt einsog hann væri ekki blindur“ og aðrar slíkar hljóti að vera öldungis merkingarlausar. Andvana fæddar.

Eitt gott dæmi er tilgáta sem margir nútímaheimspekingar tönnlast á í gríð og erg, þeir sem tala um möguleikann á uppvakningum. Það er að segja að hugsanlega hegði sér einhver einsog hann hafi meðvitund, en hafi hana í raun ekki, og sé uppvakningur.

Þetta fólk fer með staðlausa stafi.

Jæja, þetta var nú gaman.


posted by Elmar at 11:27 PM #$@ | Athugasemdir - |



s